One Floor Europe vínylparket
Fjölbreyttir litir og efni í öllum þykktum, bæði smellt og niður límt.
Fjölbreyttir litir og efni í öllum þykktum, bæði smellt og niður límt.
Á vefsvæði okkar getur þú séð brot af því besta sem við bjóðum upp á í gólfefnum, teppum og veggfóðri. Í framhaldinu er upplagt að líta við í verslun okkar í Selmúla þar sem við bjóðum upp á persónulega ráðgjöf og fyrsta flokks þjónustu frá faglærðu starfsfólki.
Fjölbreyttir litir og efni í öllum þykktum, bæði smellt og niður límt.
Gólfefnabúðin leggur mikið upp úr góðri þjónustu og miklum gæðum í gólfefnum. Hlutverk okkar er að bjóða heildarlausnir í gólfefnum fyrir heimilið og vinnustaðinn á góðum verðum.
Við bjóðum viðskiptavini okkar velkomna í verslun okkar í Selmúla. Þar bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og þjónustu frá faglærðu starfsfólki. Að auki erum við í samstarfi við verktaka sem eru sérfræðingar í lagningu parkets sem viðskiptavinir okkar geta nýtt sér.
Sýnishorn af öllum efnum eru uppsett í sýningarrýminu og hægt að fá prufur til að taka með sér.
Mælingar og tilboðsgerð eru hluti af þjónustu Gólfefnabúðarinnar og er viðskiptavinum að kostnaðarlausu.
Vínylparket er orðið eitt mest selda gólfefnið á heimili, verslanir og vinnustaði. Vinylgólf eru hljóðlaus, sterk og viðhaldsfrí gólf sem eru frábær í þrifum. Vínylparket hentar einstaklega vel á heimili sem eru með gæludýr.
Við bjóðum hágæða vínylparket frá One Flor Europe. Fyrirtækið býður upp á mjög breiða lita pallettu ásamt því að bjóða upp á efni í öllum þykktum, bæði smellt og niður límt.
Við höfum sérþekkingu á veggfóðri og bjóðum upp á þúsundir mynstra og lita frá stærstu framleiðendum Evrópu, eins og Élitis, Arte og Masureel, sem sérhæfa sig í veggfóðri og veggklæðningum fyrir heimili, vinnustaði, hótel og veitingastaði.
Í dag telur veggfóðursafnið okkar yfir 10.000 mynstur og liti í náttúruefnum, eins og raffia, sisal, hör eða silki, ásamt breiðu úrvali af vínyl veggfóðri og heilmyndum.
Við seljum ein vönduðustu ullarteppin á markaðnum og bjóðum fyri 80 tegundir í mörgum litum.
Ullin er nýsjálensk og evrópsk. Ull er sterk og með náttúrulega óhreinindavörn og henta vel hvort heldur sem er inn á heimili eða vinnustaði. Teppin eru framleidd í Hollandi og ullin er rekjanleg frá bónda í teppi.
Við sérsníðum og földum mottur eftir máli úr öllum okkar teppategundum fyrir bæði heimili og fyrirtæki.
Hvort sem þig langar í hreina ull, náttúru sísal, viscose eða flauelsmjúkt efni, við eigum þetta allt til. Mögulega mesta úrval landsins af hágæða gólfteppum.
Við bjóðum upp á hágæða teppi á stigahús og heimili ásamt fjölbreyttu úrvali af inngangs mottum sem henta vel fyrir bæði heimili og vinnustaði.
Teppaflísar eru vinsæll valkostur fyrir skrifstofur, hótel og verslanir. Þær eru auðveldar í þrifum og veita sérstaklega góða hljóðvist sem bætir vinnuumhverfið.
Shaw Contract og Paragon eru okkar stærstu birgjar en einnig erum við með „grænar“ teppaflísar frá Infloor sem eru Blue Angel vottaðar.
Við höfum sérhæft okkur í flotuðum og lökkuðum gólfum. Við köllum þessi gólf sjónflotuð gólf.
Sjónflotuð gólf eru falleg og mjög vinsæl gólf sem við notum lakk tækni til að gera endanlegt gólfefni úr floti.
Einnig gerum við gólf fyrir vöruhús, bílskúra og sambærilega fleti sem krefjast efna sem eru með harðara yfirborði.
Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval af gólflistum fyrir bæði heimili og vinnustaði.
Gólflistar eru mikilvægir til að fela þenslufúgur við veggina. Við bjóðum MDF lista í ýmsum útgáfum sem koma hvítir en hægt er að mála.
#golfefnabudin
Acoustic ECO 55 ~
Ósmellt vínylparket með áföstu undirlagi sem hægt er að líma beint niður á sléttan flöt. Efnið hentar vel þar sem krafist er mikillar hljóðvistar í rýminu eða á milli hæða. Mercury Acoustic er tilvalið fyrir leigufélög, hjúkrunarheimili, verslanir og hótel þar sem viðhald er mjög auðvelt. Það er hægt að taka eina fjöl upp ef það gerast óhöpp og setja aðra beint niður í staðin. Efnið gefur meiri mýkt og meiri hljóðvist.
19db hljóðvist dregur úr hávaða v/ umferðar, húsgagna eða annara umhverfishljóða
Hljóðdempun sem gerir rýmið rólegra og þægilegra
Þykkt: 3,5 mm. slitlag: 0,55 mm (high traffic)
12 litir; Átta litir í viðarútliti og fjórir í stein útliti
Gert fyrir gólfhita allt að 27°C
100% Vatnshelt
Rispufrí PUR prentáferð™
Þalat -frítt, 100% endurvinnanlegt.
Sennilega mesta úrval landsins af fyrsta flokks heimilisteppum, teppum fyrir stigahús og stofnanir, teppaflísum, sísalteppum og 100% hreinum ullarteppum. Sníðum mottur eftir máli úr öllum okkar teppum, mælum frítt og teppaleggjum fyrir þig líka
Ray ~ Vetur, sumar, vor og haust 🍂
Undurfalleg heilmynd frá Masureel úr nýju línunni sem er væntanleg til okkar í febrúar. Extra sterkt vínyl veggfóður með höráferð sem þolir vel mikil þrif og ágang.
CMO Paris ~ Handunnin veggfóður eingöngu unnin úr náttúrulegum efnum.
Undurfallegt handverk unnið úr Abaca, raffia, bambus, sisal, silki, við og vatnalilju blöðum í fullkominni sátt við náttúruna 🌱
CMO París væntanlegt til okkar á næstu vikum
París tók fallega á móti okkur með mildu stilltu veðri og ljósadýrð. Við hlökkum til að sýna ykkur allt það fallega sem er á leiðinni til okkar á næstu vikum. Vefnaður, náttúruefni, útsaumur og hágæða vínyl veggfóður. Grænar línur og heilmyndir.
Við erum líka einstaklega spennt að sýna ykkur nýja línu sem er eingöngu unnin úr efnum úr náttúrunni 🌱
@elitisfrance @artewalls @phillipjeffriesltd @masureel @cmoparis
Nýja línan frá Masureel er einstaklega falleg. Vor/sumar 2026 er á leiðinni
@masureel
Vorið er a leiðinni ~ @phillipjeffriesltd 🌸
Fegurðin í einfaldleikanum ~
Veggfóður með stucco áferð í línunni Essentials Kaolin frá @artewalls
Lokað
Frá og með Þorláksmessu, 23. desember, til og með 2. janúar 2025. Lokað á laugardögum.
Nýtt ár
Opnum glöð á nýju ári mánudaginn 5. janúar.